Færsluflokkur: Bloggar

Tom Jones með Barkabólgu

 

jones-tom-photo-xl-tom-jones-6230397

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tom, hinn velski tarfur, Djóns,

tónvís höldur míkrófóns.

lög hefur sungið sér til tjóns,

Sigvalda, eftir, Kaldalóns.

 


mbl.is Tom Jones með barkabólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ill tíðindi

 Stamp_IS_1948_25a-400px

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

-gjá við Trölla gýs upp fjall.

Gýg úr vellur. Hart er vor.

Út um völl fer öskugjall

Einhver fellur senn úr hor.

 

 


mbl.is Nýtt fjall á Fimmvörðuhálsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæmt ferðaveður

1922deepsnow_web_std

 

Ferðveður víða ljótt

verða kjurir skatnar

Herðakýttir húka í nótt

 uns hér það loksins batnar


mbl.is Slæmt ferðaveður víða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hreinlega...

 

judge

sækir mál djarfur af sóma flest

sjaldan þar honum neitt yfirsést

utan hreinlega eitt

sem enginn fær breytt

eigin vanhæfni og dómgreindarbrest .


mbl.is Valtýr: „Mér hreinlega yfirsást þetta"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi batnar Kastljós við þetta

Það er óskandi að þessi spjallþáttur fari nú batnandi og umfjöllun verði nú meiri um eitthvað annað en staglsama pólitíkusa og poppmúsikanta. Ekki veitir af að fjalla um mál sem varða heill og hamingju lands og lýðs. Hvar er umfjöllun um íslenskan landbúnað? Hann er jú einn af máttarstólpum samfélagsins. Einnig hefur sárlega vantað kveðskap í sjónvarpið og aðrar þjóðlegar menntir.

MissIceland1969

 

 

Kastljóssmenn nú keppist við

kvæðum skulu sinna

Bændur, magál, mörflot svið

mál er nú að kynna !


mbl.is „Ömurlegt“ að sjá á eftir Þórhalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veður

 

 628unad1

Veðurblíðan söm við sig,

sól og vindar þíðir.

Vænir geislar vekja þig

af værðarblundi um síðir.


Bræla

bræla

Nú tel ég mál sé að mæla

er mótvindar gnauða og væla.

Veðurguð stöðugt með stæla,

stóreflis suðvestanbræla.


mbl.is Bræla sunnan- og vestanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rokkvíkingr

Víkingurinn sté á stól,

stefjahrun úrr hálsi gól.

Söngvinn mjök ok syndafól.

Sex and drugs and rokk and ról.


mbl.is Víkingarnir hlustuðu á rokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oflæknirinn!

crazy-doctor.jpg

Meinsemd ekki mikil var;

á mínu nefi lítil varta.

En oflæknirinn af mér skar

alla helztu líkamsparta.


mbl.is Segir ávísanakerfi ýta undir oflækningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tengiliður Evu

 adam_eve2

Af því gjöldum alla tíð, 

er því verr og miður,

þá Adam gjörðist, eina tíð.

Evu tengiliður. 

 

Góðar stundir


mbl.is Tengiliður Evu Joly kostar 6,7 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband