13.5.2012 | 20:08
RAGNARRÖK
Fyrir því Ólafur Ragnar rök
rösklega færði og lengi
að aðrir menn bæru alla sök
á sínu valta gengi.
|
Forseti gagnrýnir fréttir RÚV |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2012 | 17:25
Gufa
Vatn og gufa, grænleitt te
gagnlegt telur hún að sé.
Í líkamsrækt með Lindu P.
legg ég allt mitt traust og fé
|
Linda Pé undirbýr sig fyrir árshátíðina |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
2.5.2012 | 11:16
Veðurfar
Batnar víða veðurfar
vindar þíðir alls staðar.
Af er hríð sem áður var
ill með kvíða og þrengingar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2012 | 20:23
Og þá var ort...
Ari Trausti upp hóf raust
ýtti úr nausti blaðalaust
Laus við flaustur, léttur hraust-
lega skaust og áfram braust.
|
Ari Trausti ætlar í framboð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.3.2012 | 16:12
Lágmarkstilkostnaðurinn
Með lágmarks tilostnaði lagt er á stig
í lággjaldaframboð í tilraunaskyni.
Herdís í forsetann fram býður sig
með fjölmarga ráðdeildarsinnaða vini.
|
Herdís fer í forsetann |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2012 | 22:30
framundan
Kolgrá hopa kólguský.
Kátt er á Norðurlöndum
Bráðum helgi björt og hlý
berst að landsins ströndum
|
Björt og hlý helgi framundan |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2012 | 10:52
Launamaður

Að starfinu gengur hann glaður.
Góður er hans vinnustaður
Lítið nú á:
Höskuldur H.
Höskuldur H. launamaður
|
Laun bankastjóra 37,1 milljón |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2012 | 20:59
Sama
Ef þú brýtur íslenzk lög
og Ögmundur gerir drama.
Enginn nennir að mæðast mjög.
Mönnum er sléttnokk sama
|
Taki ábendingar ráðuneytisins alvarlega |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.3.2012 | 18:29
Veður

Versna tekur veður
víða um land og sjá
Stormur muggu meður
margan kann að hrjá.
Nema þá allir inni
undir teppi að sinni
hírist þar í húmi,
haldi sig í rúmi.
og eða liggi leður-
sófum sínum á
|
Veður fer versnandi á landinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2012 | 00:38
Skortur
Yfir sviðið er nú horft
eins og vera ber.
Sjá, fólkið líður firna skort
á forseta, eins og mér.
Myndin er birt án góðfúslegs leyfis forsetaembættisins ;)
|
Skortur á forsetaefnum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


Stefán Friðrik Stefánsson
Brosveitan - Pétur Reynisson
Elvar Geir Sævarsson
Höskuldur Búi Jónsson
Ástþór Magnússon Wium
Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
Bjarni Harðarson
Evrópusamtökin, www.evropa.is
Eyþór Arnalds
Hallmundur Kristinsson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hlynur Hallsson
Jón Valur Jensson
Kristin stjórnmálasamtök
Vinstrivaktin gegn ESB