19.2.2012 | 03:26
Atvinna í boði
Mann sem ekki veit sitt vamm
og vasklega mun ganga fram.
Mann er sæll og syndlaus er,
sómamann og kavalér.
Mann sem hefur vizku og vit
og vogar sér í eftirlit.
Mann sem er af reynslu ríkur
en ráðvandur. Er einhver slíkur?
Vandasamt að finna forstjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Ljóð | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.