19.1.2010 | 16:21
Vonandi batnar Kastljós við þetta
Það er óskandi að þessi spjallþáttur fari nú batnandi og umfjöllun verði nú meiri um eitthvað annað en staglsama pólitíkusa og poppmúsikanta. Ekki veitir af að fjalla um mál sem varða heill og hamingju lands og lýðs. Hvar er umfjöllun um íslenskan landbúnað? Hann er jú einn af máttarstólpum samfélagsins. Einnig hefur sárlega vantað kveðskap í sjónvarpið og aðrar þjóðlegar menntir.
Kastljóssmenn nú keppist við
kvæðum skulu sinna
Bændur, magál, mörflot svið
mál er nú að kynna !
Ömurlegt að sjá á eftir Þórhalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ja ekki sé ég a.m.k. eftir honum. Kastljósið verið vetvangur væluskjóða samtímans undir hans stjórn. Kominn tími á breytingu.
, 20.1.2010 kl. 11:22
Já blessun yrði eflast þá
ef upp mun vaxa rótin
og að röddin heyrðist há
um hagyrðingamótin.
Höskuldur Búi Jónsson, 22.1.2010 kl. 16:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.